Þjónusta fyrir einkaþjálfara

Æfingakerfið hentar einstaklega vel einkaþjálfurum sem vinna með íþróttafólk.


Þitt eigið heimasvæði

  • Hver þjálfari hefur sitt eigið heimasvæði í vefkerfinu þar sem hann getur með einföldum hætti útbúið æfingaáætlanir og sent á skjólstæðinga þar sem myndbönd af hverri æfingu fylgja með.
Tilbúnar æfingaáætlanir
  • Í boði eru fjölmargar tilbúnar æfingaáætlanir sem flokkaðar eru eftir líkamshluta og/eða meiðslum og skiptast í fjögur þrep. Þrep 1 inniheldur léttari og einfaldari æfingar, en með hverju þrepi eykst erfiðleikastigið. Þetta einfaldar vinnuferlið, sparar tíma og gerir auðveldara að velja rétta áætlun fyrir hvern skjólstæðing.
Þægindi fyrir skjólstæðinga
  • Skjólstæðingar nálgast þær æfingaáætlanir sem þeim eru sendar með PTassistance snjallforritinu.
  • Um leið og þjónustan getur verið mjög tímasparandi eykur hún líkur á því að skjólstæðingar nái meiri árangri með þar sem þeir framkvæma æfingar sínar á réttan máta
Eftirfylgni með samskiptum
  • Einkaþjálfari og skjólstæðingur geta verið í samskiptum með textaskilaboðum í kerfinu sem eflir mjög alla eftirfylgni en öll skilaboð safnast saman á einn stað svo auðvelt er að sjá hvaðan og hvenær skilaboð hafa borist.
Verskrá
  • Hver einkaþjálfari greiðir fast mánaðargjald.
  • Þjálfari ákveður sjálfur hvort og hversu mikið er innheimt fyrir hverja æfingaáætlun sem send er á skjólstæðing.
  • Fyrir aukagjald fylgir áskriftinni aðgangur að fræðsluvef þar sem hægt er að:
  • veita ráðgjöf í textaformi.
  • hlaða inn fræðsluefni fyrir skjólstæðinga á myndbands/glæru eða texta formi.