Sjúkraþjálfarar

Traust vefgátt til að veita faglega þjónustu í sjúkraþjálfun.

Um vefgáttina

Þitt eigið heimasvæði
  • Hver sjúkraþjálfari hefur sitt eigið heimasvæði í vefkerfinu þar sem hann getur með einföldum hætti útbúið æfingaáætlanir og sent á skjólstæðinga þar sem myndbönd af hverri æfingu fylgja með.
  • Samstarf innan sömu stofu - Hver stofa hefur sameiginlegt heimasvæði þar sem sjúkraþjálfarar geta deilt æfingum og æfingaáætlunum sín á milli.
  • Í boði eru fjölmargar tilbúnar æfingaáætlanir sem flokkaðar eru eftir líkamshluta og/eða meiðslum og skiptast í fjögur þrep. Þrep 1 inniheldur léttari og einfaldari æfingar, en með hverju þrepi eykst erfiðleikastigið. Þetta einfaldar vinnuferlið, sparar tíma og gerir auðveldara að velja rétta áætlun fyrir hvern skjólstæðing.
Þægindi fyrir skjólstæðinga
  • Skjólstæðingar nálgast æfingaáætlanir í PTassistance snjallforritinu, en einnig er hægt að nálgast æfingaáætlanir í vafra tölvu/spjaldtölvu.
  • Góð æfingaáætlun með myndbandi af framkvæmd æfinga eykur líkurnar á að æfingarnar séu gerðar á réttan máta.
  • Virk þátttaka skjólstæðings í eigin endurhæfingu á milli sjúkraþjálfunartíma getur skipt sköpum. Þegar einstaklingur hefur skýra áætlun og getur unnið sjálfstætt með æfingar og leiðbeiningar eykst meðferðarheldnin. Það getur stuðlað að hraðari bata og í sumum tilvikum dregið úr fjölda heimsókna til sjúkraþjálfara.
Eftirfylgni með skilaboðum
  • Sérfræðingur og skjólstæðingur geta verið í samskiptum með textaskilaboðum í kerfinu sem eflir mjög eftirfylgni en öll skilaboð safnast saman á einum stað.
Verðskrá
  • Sjúkraþjálfarar geta sjálfir ákveðið hvort og þá hve mikið þeir innheimta fyrir hverja æfingaáætlun sem þeir senda skjólstæðingum sínum.
  • Hver sjúkraþjálfari greiðir fast mánaðargjald.
  • Fyrir aukagjald fylgir áskriftinni aðgangur að fræðsluvef þar sem hægt er að:
       - veita ráðgjöf í textaformi.
       - hlaða inn fræðsluefni fyrir skjólstæðinga á formi myndbanda eða texta.
       - halda vefnámskeið fyrir skjólstæðinga sem glíma við svipuð eða sömu vandamál.