Um okkur

Æfingavefur og snjallforrit sem auðveldar þjálfurum að veita faglega þjónustu.

Okkar markmið

Er að gera sjúkraþjálfarann skilvirkari og skjólstæðinginn virkari:

  • Með tilbúnum, stigskiptum æfingaáætlunum.
  • Með snjallforriti sem skjólstæðingur fær í sinn síma.
Af hverju?
  • Eftirspurn eftir sjúkraþjálfun er meiri en framboð.
  • Fólksfjölgun og aukin sjúkdómsbyrgði í þjóðfélaginu kallar á nýja nálgun sjúkraþjálfara til að sinna sínu starfi.
  • Innleiða þarf stöðlun á æfingameðferð í sjúkraþjálfun.
  • Mikill tími sjúkraþjálfara fer í að:
  • Leita að áætlunum, búa þær til frá grunni og deila þeim á óskilvirkan hátt.
  • Fylgja æfingaráætlun eftir þar sem skjólstæðingurinn er háður viðveru sjúkraþjálfarans.
  • Æfingameðferð er sú meðferð sem skilar hvað mestum árangri samkvæmt rannsóknum. PTassistance hjálpar skjólstæðingum á auðveldan og öruggan hátt að fylgja eftir æfingaáætlun milli meðferðartíma.
  • Minni kostnaður:
  • Fyrir skjólstæðinginn.
  • Fyrir heilbrigðiskerfið.
Tímasparandi eiginleikar
  • Tilbúnar æfingaráætlanir í boði, flokkaðar eftir:
  • Líkamshluta.
  • Tegund meiðsla.
  • Sjúkdómum og eftir aðgerðir.
  • Fjögur erfiðleikastig, 1-4.
  • Eftirfylgd æfingameðferðar í snjallforriti PTassistance minnkar þörfina á endurteknum meðferðum á stofu.
Eftirfylgni með skilaboðum

Þjálfari og skjólstæðingur geta verið í samskiptum með textaskilaboðum í kerfinu sem auðveldar eftirfylgni en öll skilaboð safnast saman á einn stað svo auðvelt er að sjá hvaðan og hvenær skilaboð hafa borist.