Kynntu þér teymið okkar
Á bak við PT Assistance stendur teymi reyndra sjúkraþjálfara sem vinnur að því að þróa öfluga og notendavæna þjónustu fyrir fagfólk og skjólstæðinga þeirra. Við viljum gera endurhæfingu og forvarnir skilvirkari, einfaldari og aðgengilegri, bæði í meðferð og daglegu bataferli.

Einar Einarsson
Íþróttakennari, sjúkraþjálfari, Ph.ys-Ed, B.SC PT, MTC, MSc.
Yfir 30 ára reynsla i meðhöndlun almennra stoðkerfisvandamála og íþróttameiðsla.
Fyrrverandi ráðgjafi hjá NBA liðinu Philadelphia 76´rs.
Forstöðumaður líkamlegrar endurhæfingar hjá Sádi-Arabíu atvinnumannadeildinni í knattspyrnu.
Hefur sérhæft sig í meðhöndlun neðri útlimavandamála og axlarvandamála.

Stefán Ólafsson
Sérfræðingur í íþróttasjúkraþjálfun. MTc, MSc.
36 ára starfsreynsla og hefur starfað hjá Eflingu Sjúkraþjálfun ehf á Akureyri frá 1996. Stundakennari við HR, HÍ og á námskeiðum ÍSÍ um íþróttameiðsli.
Sérhæfir sig í endurhæfingu og forvörnum tengdum hnjám, mjöðmum og ökklum, ásamt meðferð á axlarvandamálum og álagsmeiðslum ungmenna.

Hildur Kristín Sveinsdóttir
BS-gráða í sjúkraþjálfun og íþróttakennari.
Lokaritgerð: Tengsl milli stöðuskyns og hreyfingar í hálshrygg hjá heilbrigðum einstaklingum.

Þorleifur Stefánsson
BS-gráða í sjúkraþjálfun, MTc gráða.
Yfir 40 ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari á Íslandi og erlendis. Hefur starfað hjá Eflingu sjúkraþjálfun frá 1996.
Hefur sérhæft sig í meðferð við slitgigt og almennum stoðkerfisvandamálum.

Tinna Stefánsdóttir
BS-gráða í sjúkraþjálfun og einkaþjálfari frá Keili.
Starfaði hjá Eflingu sjúkraþjálfun 2006-2015.
Líkamsgreiningar, mjóbaks, mjaðmagrindar og hnévandamál. Kennsla hjá Keili.

Helena Magnúsdóttir
Sérfræðingur í íþróttasjúkraþjálfun.
Sjúkraþjálfari hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Yfir 20 ára reynsla í meðhöndlun almennra stoðkerfisvandamála og íþróttameiðsla. Unnið mikið með íþróttafólki Skagafjarðar.

